A A A

Sjúklingar komast á upplýsingahraðbrautina

23.05 2013 | Svavar Þór Guðmundsson
Hér er Ingibjörg á hæsta palli.
Hér er Ingibjörg á hæsta palli.

Legudeildum Heilbrigðisstofnunarinnar barst gjöf í dag en þá var þeim gefin spjaldtölva. Um er að ræða "Point-of-view"-spjaldtölvu með tíu tommu skjá og Android-stýrikerfi. Slík tölva er kjörin til netflakks og gæti því stytt einhverjum stundirnar sem liggur inni á deild. Gefandinn er Ingibjörg Kristín Jónsdóttir en hún er uppalin hér á Ísafirði en býr nú í Hafnarfirði. Þar æfir hún sund með SH og vildi svo skemmtilega til að hún vann þessa spjaldtölvu á sundmóti á dögunum. Þar sem henni fannst að einhver gæti haft meiri not fyrir hana en hún sjálf, ákvað hún að gefa legudeildum stofnunarinnar tölvuna. Mun hún örugglega nýtast mörgum héðan í frá enda eru ekki allir útbúnir til ferðalaga með tölvur sínar þegar veikindi herja á.

Vill starfsfólk stofnunarinnar senda Ingibjörgu kærar þakklætiskveðjur fyrir þessa höfðinglegu gjöf.

Sumarlokanir heilsugæslustöðva

13.05 2013 | Þröstur Óskarsson

Heilsugæslustöðvarnar á Suðureyri, í Súðavík og á Flateyri verða lokaðar vegna sumarleyfa í júlí og ágúst 2013.

 

Fólk er beðið um að hafa samband við Heilsugæsluna á Ísafirði sími 450 4500

Tjörn opin í sumar

6.05 2013 | Þröstur Óskarsson

Ákvörðun um sumarlokun á Tjörn hefur verið endurskoðuð og niðurstaðan er að fallið er frá lokuninni.

Þessi ákvörðun er tekin í trausti þess að hægt verði að manna afleysingarstöður vegna sumarfría starfsfólks.

 

Viljayfirlýsing undirrituð

12.04 2013 | Svavar Þór Guðmundsson

Forsvarsmenn Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða (HVest) og Ísafjarðarbæjar skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um rekstur hjúkrunarheimilis á Ísafirði sem rísa mun, að öllu óbreyttu, á Torfnesi í náinni framtíð. Heimilið verður í eigu bæjarins sem mun reka það skv. leigusamningi við Velferðarráðuneytið en afhent HVest til rekstrar. Heilbrigðisstofnuninni er uppálagt að haga rekstri eins og best hentar t.d. hvað varðar samnýtingu starfsmanna, áherslur í rekstri og aðra samþættingu milli sjúkrahúss og hjúkrunarheimilis. Stefnt er að því að klára samning um þessi mál sem fyrst og að sá verði til 25 ára.

Stjórnendur og starfsmenn HVest gera sér fulla grein fyrir mikilvægi hjúkrunarheimilis á svæðinu og fagna undirritun þessarar viljayfirlýsingar enda hillir nú óðum undir að framkvæmdir hefjist við bygginguna.

Velferðarráðherra heimsækir HVest

10.04 2013 | Svavar Þór Guðmundsson
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra spjallar við starfsfólk HVest.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra spjallar við starfsfólk HVest.

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Ólína Þorvarðardóttir þingkona Samfylkingar í Norð-vestur kjördæmi litu við á Heilbrigðisstofnuninni í morgun. Þau röbbuðu við starfsfólk og skjólstæðinga í aðdraganda kosninga og tóku púlsinn á starfsemi stofnunarinnar sem, eins og áður, er í góðum farvegi enda aðhald og ábyrgð í hávegum höfð. Loks snæddu þau með starfsmönnum áður en haldið var af stað suður yfir heiðar.

Fyrri síða
1
234567353637Næsta síða
Síða 1 af 37
Vefumsjón