Heilsugæsluselið SuðureyriHeilsugæsluselið á Suðureyri er opið á mánudögum kl. 9-12. Þá er viðstaddur ritari og læknir sem kemur frá Heilsugæslustöðinni á Ísafirði.

Á heilsugæsluselinu er aðstaða fyrir lækni, ungbarnaeftirlit og tannlækni. Tannlæknir kemur þó aðeins einu sinni á ári að staðaldri, en sinnir hann þá aðallega skólabörnum svæðisins.

Saga heilsugæslu Suðureyrar Héraðslæknirinn á Suðureyri í Súgandafirði fluttist árið 1962 í nýreistan læknisbústað sveitarfélagsins. Þar var gert ráð fyrir fjórum sjúklingum. Það var þó ekki fyrr en árið 1967 sem fyrsti sjúklingurinn innskrifaðist þar, að öllum líkindum vegna stopullar staðfestu lækna í héraðinu. Rúmum fjörutíu árum seinna, eða 28. febrúar árið 2003, flutti heilsugæslan í nútímalegri aðstöðu að Aðalgötu 2. Þá var læknabústaðurinn orðinn svo til óhæfur til síns brúks. Nú er vel rúmt um starfssemina.
HeimildirVilmundur Jónsson. Sjúkrahús og sjúkraskýli á Íslandi í hundrað ár. Ísafoldarprentsmiða hf. Reykjavík, 1970.
|