Laus staða kennara
Nánar um starfið og fleiri störf sem laus eru til umsóknar hér: http://www.strandabyggd.is/laus_storf/
Strandabyggð gerir hér með verðfyrirspurn varðandi skólaakstur fyrir skólaárið 2025-2026.
Um er að ræða akstur með skólabörn leik- og grunnskóla í dreifbýli í Strandabyggð. Tilboðsgjafi skal veita upplýsingar um bílakost, mönnun, bakgrunn, reynslu og þekkingu á staðháttum. Tilboðsgjafi skal hafa hreina sakaskrá. Bílstjóri og varabílstjóri, skulu hafa réttindi til aksturs skólabifreiðar.
Allar nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri, Þorgeir Pálsson í síma 899-0020. Einnig má senda fyrirspurn á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is
Frestur til að skila inn tilboðum er til loka dags 20. ágúst 2025. Skólaakstur hefst 25. ágúst 2025.
Strandabyggð áskilur sér rétt til að taka því tilboði sem sveitarfélagið metur hagstæðast, eða hafna öllum.
Starfsfólk óskast í félagslega liðveislu og skammtímavistun á starfssvæði félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps.
Um er að ræða störf sem staðsett eru Reykhólum.
Markmið starfsins er að styðja við daglegt líf og þátttöku í samfélaginu.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum sambands íslenskra sveitarfélag og viðkomandi stéttarfélaga.
Upplýsingar eru veittar í síma 451-3510 og fyrirspurnir og umsóknir má einnig senda á felagsmalastjori@strandabyggd.is
Við hvetjum áhugasama, óháð kyni og uppruna um að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst 2025
Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist Hlíf Hrólfsdóttur, félagsmálastjóra, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.
Kæru íbúar Strandabyggðar,
Nú um helgina var haldin í annað sinn, bæjarhátíðin „Sameinumst á Ströndum“. Hún tókst frábærlega og það er vert að hrósa aðstandendum hátíðarinnar sem lögðu ómælda vinnu í framkvæmdina. Vel gert! Ótal margir aðrir lögðu hátíðinni lið og við þökkum þeim einnig fyrir þeirra framlag.
Það er alls ekki sjálfgefið að skipuleggja og framkvæma hátíð af þessu tagi. Og eitt er að skipuleggja og auglýsa ... en annað er síðan hvernig íbúar og gestir bregðast við. Óhætt er að segja að allt gekk upp og var mæting mjög góð, alla dagana. Gleði og ánægja einkenndu samskipti fólks og allir voru staðráðnir í að skemmta sér.
Sameinumst á Ströndum er bæjarhátíð sem er komin til að vera. Nú er hægt að draga lærdóm af framkvæmdinni síðustu tvö ár og móta þannig fyrirkomulag sem tryggir gott skipulag, fjármögnun og mannafla til að halda áfram. Við, íbúarnir, þökkum svo fyrir okkur með góðri mætingu og klöppum skipuleggjendum á bakið fyrir vel unnið verk.
Takk fyrir frábæra hátíð!