Gullskórinn afhentur á forvarnardaginn
Það var líf og fjör í skólanum okkar á forvarnardaginn þann 5. október sl. en dagurinn er haldinn árlega undir yfirskriftinni ,,taktu þátt" og er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu. Arnar Jónsson tómstundafulltrúi kom og vann verkefni með nemendum í 9. bekk til þess að fá fram sjónarmið þeirra um hin og þessi mál. Um kvöldið hélt Logi Geirsson handboltakappi fyrirlesturinn "Það fæðist enginn atvinnumaður" í Félagsheimilinu. Þann sama dag hlupu nemendur okkar í norræna skólahlaupinu á alþjóðlega ,,Göngum í skólann deginum" sem var haldinn hátíðlegur víða um heim. Um leið lauk formlega verkefninu ,,Göngum í skólann" hér á landi og hjá okkur en nemendur okkar hafa gengið í skólann síðastliðinn mánuð og safna laufblöðum á trén sín til að keppast um verlaunagripinn gullskóinn.
Að sögn Ingibjargar Emilsdóttur verkefnisstjóra grænfánaverkefnisins hefur verkefnið gengið einkar vel, meira að segja það vel að það var ekki hægt að gera upp á milli bekkja sem endaði með því að allir nemendur skólans hlutu gullskóinn í viðurkenningarskyni fyrir frábæra þátttöku í verkefninu. Ingibjörg er hönnuður og gefandi gullskósins sem skipar ákveðinn sess í hjarta hennar. Hér má lesa söguna af gullskónum: http://www.strandabyggd.is/ymsar_skrar/skra/289/
Á forvarnardaginn gæddu nemendur sér á niðurskornu grænmeti og ávöxtum sem Kaupfélag Steingrimsfjarðar gaf okkur og vatni í sjómannsbrúsa frá Arion banka. Við erum afar stolt af fólkinu okkar og þakklát KSH og Arion banka fyrir hvatninguna.
Til hamingju allir með frábæran forvarnardag! Myndir hér: http://www.strandabyggd.is/grunnskolinn_myndasida/100/
Norrćna skólahlaupiđ
Logi Geirsson heldur fyrirlestur á Forvarnardaginn
Fyrirlesturinn hefst kl. 20:00 í Félagsheimilinu á Hólmavík og er öllum opinn.
Það er enginn annar en fyrrverandi handboltakappinn Logi Geirsson sem mætir á Strandirnar til að halda fyrirlesturinn. Loga þarf vart að kynna; hann vann til fjölda verðlauna með félagsliðum sínum auk bronsverðlauna með landsliðinu á EM 2010 að ógleymdum silfurverðlaunum á Ólympíuleikunum í Peking 2008.
Logi fæddist ekki atvinnumaður frekar en nokkur annar og þurfti að leggja hart að sér til að ná þeim árangri sem hann hefur náð. Hann telur að allir geti orðið atvinnumenn, allir geta risið upp og farið fram úr eigin væntingum - allir geta náð árangri. Logi mun tala sérstaklega til ungs fólks um markmiðasetningu, þjálfun, hugarfarsþáttinn og fleira sem huga þarf að ætli menn að ná langt.
Fólk á öllum aldri úr öllum sveitarfélögum er að sjálfsögðu velkomið á atburðinn!
Námsefniskynningar
Starfsfólk Grunnskólans á Hólmavík vill bjóða ykkur öll hjartanlega velkomin á námskynningar sem fara fram í skólanum í dag og á morgun. Mikilvægt er að allir forráðmenn sem koma að námi barns mæti. Að þessu sinni viljum við sérstaklega hvetja feður til að láta sig málið varða :)
Kynningarnar eru mikilvægur liður í starfi skólans þar sem upplýsingum er komið á framfæri við foreldra varðandi námið sem framundan er í vetur. Til umfjöllunar verða eftir atvikum: Námsáætlanir, námskröfur, heimanám, námsefni og annað sem skiptir foreldra miklu máli í því mikilvæga hlutverki að vinna með skólanum að auknum námsárangri og leiðbeina barni í námi. Þarna gefst gott tækifæri til að ræða ýmis hagnýt atriði og er foreldrum velkomið að opna umræðuna um brýn sameiginleg málefni.
Kynningarnar verða eins og hér segir:
Mánudagur 26. september 2011
1. og 2. bekkur, kynning kl. 18:30
3. bekkur, kynning kl. 19:30
Þriðjudagur 27. september 2011
4. - 6. bekkur, kyning kl. 18:30
7. - 8. bekkur, kynning kl. 19:30
9. og 10. bekkur, kynning kl. 20:30
Hlökkum til að sjá sem flesta :)
Athygli - já takk
Ekki er til lækning við ADHD enda ekki skilgreint sem sjúkdómur. Þetta er krónískt ástand sem fylgir einsatklingi frá barnsaldri, en það er oftast greint innan 7 ára aldurs, til fullorðinsára. Mikilvægt er að skilja að barn sem er með ADHD velur ekki sjálft að vera til vandræða - og er í sjálfu sér ekki til vandræða heldur veldur frávikið hegðun þess. Því miður verða börn með ADHD oft útskúfuð félagslega vegna hegðunar sinnar. Þó er hægt að kenna barni með ADHD ýmislegt til að hjálpa því að falla félagslega inn í hópa. Flest þessi börn eru á lyfjum, fjölskyldur þeirra fá ráðgjöf og stuðning til að eiga við hegðun barnsins og oft eru gerðar einstaklingsmiðaðar stundaskrár í skóla til að barninu gefist kostur á að læra á sínum hraða og samkvæmt sinni getu sem getur verið mismunandi frá degi til dags. Einnig er stuðst við hegðunarmótandi aðferðir.
Það skal tekið skýrt fram að ADHD er algerlega óháð greind. Börn með ADHD geta vel lært. Þau þurfa umfram allt á skilningi, stuðningi, umhyggju og þolinmæði þeirra að halda sem vinna með þeim. Foreldrar barna, sem eru í bekk með börnum sem glíma við ADHD, þurfa að upplýsa börn sín um hvað það sé að vera með ADHD og hvað það felur í sér. Börn eru að upplagi fordómalaus og við foreldrar þurfum að vera þeim fyrirmynd og meðvituð um okkar eigin fordóma.
Foreldrar barna með ADHD þurfa einnig á skilningi annarra að halda og stuðningi því að það er ekki alltaf auðvelt að glíma við barn með ADHD. Góðu fréttirnar eru þær að almenningur er orðinn mjög meðvitaður um hvað það felur í sér að eiga barn með ADHD og því hafa fordómar samfélagsins minnkað til muna. Þetta hjálpar foreldrum barnanna mikið fyrir utan hvað það skiptir einstaklinginn sjálfan miklu máli sem glímir við röskunina.
Stöndum saman og sýnum skilning, það skilar alltaf bestum árangri.
Hildur Jakobína Gísladóttir
félagsmálastjóri Stranda og Reykhólahrepps
Krakkarnir okkar í Landanum!
Strandabyggð hefur stutt við uppbyggingu brautarinnar í gegnum tíðina með styrkjum, en mestöll vinna við uppbyggingu hefur verið unnin af sjálfboðaliðum. Unga fólkið okkar kom að vanda vel fyrir í þættinum og var Ströndum til sóma.
Hægt er að horfa á umfjöllunina með því að smella hér.
Frétt fengin af vefnum www.strandabyggd.is
Hvetjum börnin og fylgjumst međ!
Grunnskólar leita því allra leiða til að gefa foreldrum aukna hlutdeild í skólastarfinu og líta á þá sem mikilvæga samstarfsaðila á jafnréttisgrundvelli. Aðgangur foreldra að Mentor er einn liður í þessu samstarfi og hér má sjá stutta kynningu á aðgangi foreldra að Mentor.
Samrćmd könnunarpróf
Samræmd könnunarpróf verða haldin í öllum grunnskólum landsins í næstu viku eins og hér segir:
Í 10. bekk:
Íslenska mánudagur 19. sept. kl. 09:00 - 12:00
Enska þriðjudagur 20. sept. kl. 09:00 - 12:00
Stærðfræði miðvikudagur 21. sept. kl. 09:00 - 12:00
Í 4. og 7. bekk:
Íslenska fimmtudagur 22. september kl. 09:00-11:20 og 11:40 (20 mín hlé)
Stærðfræði föstudagur 23. september kl. 09:00-11:20 og 11:40 (20 mín hlé)
Hér má lesa allt um uppbyggingu og framkvæmd prófanna.
http://www.namsmat.is/vefur/samr_prof/grunnskolar/framkvamd/framkvamd_47010_2011.pdf
Kæru nemendur. Passið uppá að hvílast vel og óttast ekki prófin. Þið gerið ykkar besta og vandið ykkur. Gangi ykkur öllum vel :)
Göngum í skólann
Nú höfum við ákveðið að taka þátt annað árið í röð í verkefninu Göngum í skólann en meginmarkmið þess er að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða fara á annan virkan hátt til og frá skóla. Á morgun, miðvikudaginn 14. september munum við fara af stað og verður verkefnið með mjög svipuðu sniði og síðastliðinn vetur. Nemendur ganga eða hjóla í skólann og setja laufblað á bekkjartréð sitt. Þeir sem ganga eða hjóla setja græn laufblöð á trén, þeir sem koma á bíl setja brún laufblöð á trén. Þeir sem ferðast með skólabíl verður boðið uppá það að fara út hjá gömlu sjoppunni og labba þaðan í skólann og fá þá grænt laufblað. Einnig verður hægt að ganga af sér í frímínútum. Hér má sjá frekari upplýsingar um verkefnið.