Skipulag náms og námsmat - ATH breytt stađsetning!
Öll velkomin.
Býrð þú yfir þekkingu á íþrottagrein?
Geislinn leitar að einstaklingi til að sjá um æfingu á fimmtudögum fyrir 6 - 9 ára iðkendur í íþróttahúsinu á Hólmavík fram til áramóta. Æfingin er milli klukkan 13:45-14:30. Um er að ræða íþróttagrunn sem felur í sér að ein íþróttagrein er tekin fyrir í 5-6 skipti. Það yrðu þá 3 íþróttagreinar á þessari önn. Við eru einnig opin fyrir því að skipta þessum greinum milli þriggja einstaklinga sem hver tæki 5-6 skipti í röð kjósi viðkomandi svo.
Lágmarks hæfniskröfur: Hafa hreint sakavottorð og lágmarks þekkingu á greininni sem tekin er fyrir, virða og fylgja almennum samskipta og siðferðis gildum og geta átt jákvæð og uppbyggjandi samskipti við þátttakendur.
Greitt er fyrir 1 klukkustund og ferðakostnað búi viðkomandi utan Hólmavíkur.
Endilega sendið okkur tölvupóst á umf.geislinn@gmail.com til frekari upplýsinga.
Grunnskólinn á Hólmavík og Leikskólinn Lækjarbrekka
Staða listgreinakennara skólaárið 2022-2023
Staða listgreinakennara með áherslu á sjónlistir, hönnun og smíði. Um er að ræða kennslu í 1. – 10. bekk með samkennslu hópa. Starfshlutfall 60%. Athugið að um tímabundna ráðningu til eins árs er að ræða frá 1. ágúst 2022.
Staða leikskólakennara
Staða leikskólakennara, almennt starf á deild. Starfshlutfall er 100% og vinnutíminn frá 8:00-16:00. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 8. ágúst nk. eða sem fyrst eftir það.
Grunnskólinn Hólmavík og Leikskólinn Lækjarbrekka tilheyra sameinuðum leik-, grunn- og tónskóla í Strandabyggð og starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um grunnskóla og leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá grunnskóla og stefnu skólans. Uppeldisstefnan er jákvæður agi, skólinn er grænfánaskóli og unnið er að innleiðingu heilsueflandi skóla.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Kennaramenntun, leyfisbréf og hæfni til kennslu í viðeigandi skólagerð
• Góð íslenskukunnátta
• Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
• Jákvæðni, frumkvæði og góður samstarfsvilji
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
• Reglusemi og samviskusemi
• Hreint sakavottorð
Laun eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknarfrestur er til 5. júlí 2022.
Sjá einnig https://alfred.is/starf/leikskolakennari-i-strandabyggd, https://alfred.is/starf/laust-starf-i-strandabyggd
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir skólastjóri gefur upplýsingar um starfið og tekur á móti umsóknum ásamt ferilskrá, afriti leyfisbréfa og upplýsingum um meðmælendur netfang skolastjori@strandabyggd.is
Grunnskólinn Hólmavík tilheyrir sameinuðum leik-, grunn- og tónskóla í Strandabyggð og starfar samkvæmt lögum og reglugerðum um grunnskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá grunnskóla og stefnu skólans.
Uppeldisstefnan er jákvæður agi, skólinn er grænfánaskóli og unnið er að innleiðingu heilsueflandi skóla.
Hæfni:• Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
• Jákvæðni, frumkvæði og góður samstarfsvilji
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
• Reglusemi og samviskusemi
• Hreint sakavottorð
Laun eru samkvæmt samningum Strandabyggðar og Kjalar stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 5. júlí 2022.
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir skólastjóri gefur upplýsingar um starfið og tekur á móti umsóknum ásamt ferilskrá, og upplýsingum um meðmælendur netfang skolastjori@strandabyggd.is
Skólaþjónustan Ásgarður og fjórtán grunnskólar hafa í vetur unnið að því að skipuleggja valgreinar fyrir unglingastig þvert á skóla, þvert yfir landið.
Upphaf þessarar vinnu var rausnarlegur styrkur til Ásgarðs og Skóla í skýjunum síðastliðið haust frá samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra SSNV. Styrkurinn var meðal annars nýttur til að þróa miðlægt tvær valgreinar. Nemendur í níu skólum tóku þátt í náminu á netinu sem heppnaðist afar vel og framhaldsstyrkur varð svo til þess að farið var í að þróa valgreinaval í samstarfi við fleiri skóla.
Í samráði við skólastjórnendur í fjórtán skólum var nemendum gefinn kostur á að koma með tillögur að valgreinum og taka þátt í forvali. Að öllum líkindum verður hægt að bjóða upp á allt að fjórtán valgreinar í Valgreinaskólanum næsta haust. Meðal valgreina í boði verða Kökuskreytingar, íþróttaval, eðlis- og efnafræðival, kvikmyndagerð, franska, þýska, hljóðblöndun, kynjafræði, rafíþróttir, tölvuleikjahönnun og leiklist.
Samstarfsskólarnir eru: Reykhólaskóli, Patreksskóli, Bíldudalsskóli, Tálknafjarðarskóli, Grunnskóli Bolungarvíkur, Grunnskólinn á Hólmavík, Hríseyjarskóli, Stórutjarnaskóli, Þingeyjarskóli, Reykjahlíðarskóli, Öxarfjarðarskóli, Grunnskóli Raufarhafnar, Skóli í skýjunum og Þórshafnarskóli.
Valgreinarnar verða settar upp á Námsgagnatorgi í Valgreinaskólanum. Kennarar koma úr þátttökuskólunum. Þetta er þess vegna tækifæri í starfsþróun fyrir kennara í Valgreinaskólanum auk þess sem þekking þeirra og hæfni nýtist fleirum. Þetta er líka tækifæri fyrir nemendur í fámennum skólum sem fá þá aðgang að fjölbreyttum valgreinum í samræmi við áhugasvið sitt og efla tengslanet sitt með því að kynnast nemendum úr öðrum skólum. Annað eins framboð af valgreinum er ekki mögulegt að bjóða án þessa samstarfs.